mánudagur, nóvember 15, 2004

-Vörld köpp í bakhrindingum-
Einhvern næstu daga mun fara fram alþjóðlegt mót í hinni fornu íslensku íþróttagrein handbolta, en íþrótt sú gengur að mestu leyti út á bakhrindingar og almennan fautaskap. Að sjálfsögðu verða fyrrum B-heimsmeistarar Íslendinga með á þessu móti sem ber heitið World Cup, þó svo að allar þær þjóðir sem þátt taka komi frá Evrópu.
Líkt og með undanfarin "stórmót" í þessari íþrótt verður ítarleg umfjöllun um mótið á vefsíðunni handbolti.blogspot.com. Vefur þessi hefur vakið mikla athygli fyrir ítarlega og mjög fræðilega úttekt á þessari fornu íþróttagrein sem virðist vaxa að virðingu og vinsældum með hverju ári.

Áfram Ísland!

Góðar stundir.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home

Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com