fimmtudagur, desember 09, 2004

-Fótboltablogg-
Ég hef afskaplega lítið tjáð mig um fótbolta hér á þessari síðu upp á síðkastið. Núna get ég hins vegar ekki setið á strák mínum, því drengirnir í Liverpool Football Club fóru á kostum í kvöld og sýndu meðal annars úr hverju þeir eru gerðir og að þeir hafi unnið heimavinnuna sína, spiluðu geysilega vel varnarlega sem og sóknarlega og sýndu mótherjanum bæði í tvo heimana sem og hvar Davíð keypti ölið...eru einhverjir fleiri frasar eftir...já og svo stigu þeir að sjálfsögðu ekki feilnótu í leiknum og voru mikið mun betri aðilinn í leiknum. Þá er það komið.

Mínir menn eru sem sagt komnir áfram í 16 liða úrslit í Meistaradeildinni, erfiðustu deildakeppni í heimi, þar sem einungis þeir bestu taka þátt. Nú sé ég ekkert því til fyrirstöðu að við förum alla leið í þessari keppni og sækjum aftur dolluna sem við unnum síðast fyrir einhverjum tuttugu árum síðan. Áfram Liverpool!!!

Góðar stundir.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home

Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com