-Popppunktur...-
...er alveg hreint stórskemmtilegt spil, enda er ég svo góður í því. Haldið var spilakvöld heima hjá brósa á jóladagskvöld og af fimm spilum sem voru spiluð vann ég fjögur...veit eiginlega ekki alveg hvað klikkaði í því fimmta.
Ekki skemmdi svo fyrir ánægjunni þegar spurt var um gömlu hljómsveitina mína, Funkmaster 2000, í spilinu. Vakti það mikla kátínu meðal viðstaddra. Nokkuð ljóst að popppunktur verður spilað oftar á þessu heimili.
...annars voru jólin fín, fyrir þá sem hafa áhuga. Fékk gnótt góðra bóka að gjöf, auk fleiri góðra gjafa, og fyrir það ber að þakka.
Góðar stundir.

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home