föstudagur, desember 31, 2004

-Annað uppgjör-
Nú er lag að birta einhvern smá lista yfir beztu lög ársins að mati ritstjórnar síðunnar. Þessu verður raðað í handahófskennda röð og engin sérstök lógík þar á bakvið.

Homesick, Misread, Cayman Islands, I´d rather dance with you - Kings of convenience. Ég gæti eiginlega valið öll lögin af þessari plötu. Þessi fjögur koma fyrst upp í hugann
December 4th - DJ Dangermouse. Lag af plötu sem ber nafnið The GreyAlbum. DJ Dangermouse blandar saman Hvíta albúmi Bítlanna og Svarta albúmi Jay-Z. Þetta lag er yfirburðalag á plötunni, Jay-Z rappar yfir lúppur af laginu Mother natures son. Þetta jaðrar við að vera snilld.
Sunshine og Bedshaped - Keane. Tvö frábær lög af eðal plötu.
The outsiders og Boy in the well - REM. Flott lög af frekar slakri REM plötu, á þeirra mælikvarða altsvo.
Take me out - Franz Ferdinand. Diskóbít og eðal gítarriff...getur ekki klikkað.
No need - Alfie. Lagið sem kveikti áhuga minn á þessu bandi. Eðal.
Irish blood, English heart - Morrissey. Eðalrokkari frá Morrissey. Gæti nefnt fleiri lög af þessari plötu, en es ist gut.

...svo er ég vafalaust að gleyma fullt af lögum, þetta er það sem kemur fyrst upp í kollinn. Hins vegar er engum blöðum um það að fletta að árið 2004 var glæsilegt tónlistarár, vel yfir meðallagi.

Góðar stundir.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home

Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com