þriðjudagur, janúar 18, 2005

-Sólmyrkvi-
"...and everything under the sun is in tune
but the sun is eclipsed by the moon."

Að vera stuðningsmaður Liverpool getur verið góð skemmtun. Þó hefur það ekki verið samfelld gleðiganga og oftsinnis hafa skipst á skin og skúrir. Undanfarinn rúman áratug hefur frekar dunið á með skúrum þó svo að oftsinnis hafi örlitlar sólarglætur gert vart við sig hér og þar. Síðustu dagar hafa hins vegar verið með eindæmum harðir og bætt hefur allhressilega í vindinn og ekki að sjá að sólin sé á þeim buxunum að fara að brjótast í gegnum skýin (eru allir að fylgja þessari veðursamlíkingu ennþá?). Á laugardaginn töpuðum við fyrir erkifjendum okkar á heimavelli, eftir skelfileg mistök þess manns sem gegnir stöðu markvarðar um þessar mundir. Í kvöld varð svo algjör sólmyrkvi og fór jafnvel að rigna eldi og brennisteini, þegar liðið var slegið út úr ensku bikarkeppninni af einhverju neðrideildaliði. Mínir menn spiluðu einhvern versta fótboltaleik sem sést hefur frá upphafi, og til að toppa vonbrigðin þá töpuðum við á ömurlegu sjálfsmarki. Sjaldan eða aldrei hefur mig langað eins mikið að hætta að horfa á fótbolta og einmitt nú í kvöld...og þá meina ég fyrir fullt og fast.
Ekki getur maður einu sinni sagt að framtíðin sé björt hjá liðinu, því hópurinn í kvöld var að mestu skipaður mönnum sem eiga að teljast framtíðarstjörnur hjá liðinu...og þeir gátu ekki einu sinni sent fimm metra sendingu á samherja.

Ég ætla allavega að taka mér frí frá liðinu fram á laugardag...sjá hvort aðskilnaðurinn hefur ekki græðandi áhrif á samband okkar.

Að lokum biðst ég afsökunar á að hafa komið með fótboltablogg...ég veit að það hafa ekki allir gaman af slíku...en stundum verður maður bara að fá að tappa aðeins af.

Ég þakka þeim sem hlýddu.

Góðar stundir.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home

Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com