mánudagur, janúar 17, 2005

-Eureka!-
Komiði sæl. Ég hefi fengið af því fregnir að staðfastir lesendur þessarar síðu hafi verið farnir að örvænta sökum þess hve langt er síðan rituð hafa verið orð hérna. Það er skemmst frá því að segja að fréttastjóri síðunnar hefur verið rekinn og í staðinn hefur Páll Magnússon samþykkt að gegna þeirri stöðu tímabundið. Leitað er að eftirmanni fyrrverandi fréttastjóra.

Reyndar skal það viðurkennt að tölvubúnaður sá er allajafna er notaður við skriftir hérna brotnaði undan álaginu á dögunum og það var fyrst í dag sem búnaðurinn komst loks í gang á ný, þökk sé bróður mínum honum Helga. Þar hefurðu það Helgi!

Það sem er einna helst af mér að frétta er það að á dögunum gekkst ég undir mikinn uppskurð á úlnlið, hvar fjarlægð var einhvers konar vatnsfyllt blaðra. Það er skemmst frá því að segja að uppskurðurinn gekk framar vonum og heilsast móður og barni eftir atvikum vel.

Á sunnudaginn verður mikið um dýrðir, enda merkur dagur sem þá rennur upp. Ekki eingöngu að HM í handbolta hefjist þann dag, heldur ku ég einnig eiga afmæli þann daginn. Ljóst er að framundan er mikið húllumhæ.

Góðar stundir.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home

Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com