-Loksins almennilegt band-
Mig dreymdi ansi athyglisverðan draum í nótt sem mig langar að deila með lesendum þessarar síðu. Þannig var mál með vexti að ég var staddur á hljómsveitaræfingu sem ég hafði verið kallaður á með stuttum fyrirvara, enda átti hljómsveitin að spila á tónleikum strax sama kvöld. Með miklum efasemdum ákvað ég að taka þetta verkefni að mér og hafist var handa við að leyfa mér að heyra lögin sem ætti að spila, og kom þá í ljós að hljómsveit þessi var svokölluð cover-hljómsveit sem sérhæfði sig í að spila lög eftir hljómsveitina Prefab sprout (sem er bæ ðe vei alveg fínasta hljómsveit). Hófumst við handa við að æfa, en fljótlega fóru að renna á mig tvær grímur þegar í ljós kom að ekki átti að spila frægustu lög Prefab sprout, heldur aðallega lög frá upphafi ferils þeirra (ég reyndar veit ekkert hvenær hljómsveitin hóf störf, eða á hvaða tímapunkti í sögu hljómsveitarinnar frægu lögin voru samin). Þannig stóð til að mynda ekki til að taka lögin King of rock and roll, Cars and girls eða Appetite og leist mér engan veginn á þá ráðstöfun. Um það leyti sem umræður um þessar athugasemdir mínar voru að hefjast lauk draumnum.
Draumfarir mínar, sem hafa sjaldan verið mjög eðlilegar, verða undarlegri með degi hverjum.
...góður draumur mar.
Góðar stundir.

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home