sunnudagur, febrúar 20, 2005

-Söguleg helgi að baki-
Eins og áður hefur komið fram hélt Sögufjelag Hafnarfjarðar aðalfund sinn í gærkvöldi. Það sem helst bar til tíðinda á þessum fundi var það að ég var endurkjörinn formaður fjelagsins, með öllum greiddum atkvæðum. Ekki einu sinni Davíð Oddsson eða Saddam Hussein hafa fengið viðlíka kosningu. Greinilegt að meðlimir fjelagsins kunna vel að meta formann sinn og þau störf sem hann hefur unnið fyrir fjelagið.

Í dag fór ég svo í kirkju í Kópavoginum, vel þunnur, til að vera viðstaddur skírnarathöfn, þar sem presturinn, sem var kona (allt er nú til), talaði til safnaðarins eins og þeir væru vangefin börn. Mér leið allavega eins og ég væri viðstaddur upptöku á Stundinni okkar. En það er kannski eina leiðin til að troða þessum boðskap ofan í fávísan almúgann. Stoppaði svo stutt við í skírnarveislunni, enda heilsan ekki upp á það besta eftir skemmtunina í gærkvöldi.
...það er samt gaman að geta þess svona í framhjáhlaupi að ég er einmitt skírður í Kópavoginum í hinni frægu kirkju uppi á Kópavogshæðinni...gaman að segja frá því.

Góðar stundir.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home

Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com