-Draumur um Laxness-
Í nótt dreymdi mig að ég væri staddur á mínu gamla heimili á Hjallabrautinni í Hafnarfirði. Þar sat ég í sjónvarpsholinu ásamt föður mínum, Sævari frænda og Halldóri Laxness!!!. Í sjónvarpinu var Ingólfur Margeirsson (sagnfræðinemi) að taka viðtal við engan annan en téðan Halldór Laxness. Sá Laxness sem sat við hliðina á mér í sófanum fór að velta því fyrir sér hvort þátturinn í sjónvarpinu væri í beinni útsendingu. Því neituðum við hinir að sjálfsögðu, af augljósum ástæðum, og þá áttaði Halldór sig og sagði eitthvað á þessa leið: "Nei auðvitað ekki, ég er auðvitað dauður".
...verður þetta að teljast með furðulegri draumum sem mig hefur dreymt....og er þar af nægu að taka. Þetta slagar alveg upp í handboltadrauminn.
Góðar stundir.

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home