þriðjudagur, mars 08, 2005

-Einkennilegt fréttamat-
Í fréttatíma Stöðvar tvö í kvöld birtist, tiltölulega framarlega, ansi undarleg frétt. Hún fjallaði um það að Eiður Smári Guðjohnsen, eða Eidur Gudjohnsen eins og hann heitir erlendis, væri í byrjunarliði Chelsea í kvöld í Meistaradeildinni. Svo var því skotið að í framhjáhlaupi að leikurinn yrði sýndur í beinni á Sýn. Eru menn ekki komnir aðeins of langt í þjóðrembingnum? Verður þetta föst regla héðan í frá í fréttum stöðvarinnar að fylgjast með því hvort Eiður sé í liðinu eða ekki. Verður jafnvel í kjölfarið farið að birta fréttir um það hvernig strákurinn stóð sig á æfingu þann daginn? Eða var þetta kannski bara illa dulbúin auglýsing fyrir Sýn, svona til að minna fólk á að ennþá væri hægt að kaupa sér aðgang að stöðinni?
...þrátt fyrir allt var þetta samt áhugaverðari frétt en fréttir undanfarinna daga um það hvar vegabréf Bobby Fischer er statt hverju sinni.

Talandi um Fischer, þá minnist ég þess að þegar "íslenska sendinefndin" fór utan til Japans, þá sögðust þeir luma á einhverjum ás uppi í erminni sem ætti að spila út ef ekki tækist að fá manninn lausan. Eitthvað hefur lítið farið fyrir þessu óvænta útspili. Ásinn hefur kannski orðið eftir heima. En við bíðum allavega spennt eftir næstu fléttu í þessari löngu og erfiðu skák...og hvar verður vegabréfið á morgun? Spennan er allt að því óbærileg.

Annars var leikur Chelsea og Barcelona í kvöld hin allra bezta skemmtun og jafnvel með skemmtilegri fótboltaleikjum sem maður hefur séð, og okkar maður stóð sig með prýði, allavega framan af. En ég hef fulla trú á því að mínir menn í Liverpool eigi eftir að bjóða upp á ennþá betri skemmtun annað kvöld. Samkvæmt veðurspám í Leverkusen má búast við markaregni á morgun.

Lagið sem er fast í kollinum á mér þessa dagana er með hljómsveitinni Beach boys (aldrei þessu vant) og heitir ´Til I die og er af hinni annars arfaslöku plötu Surf´s up. Hrikalega flott lag, hvar Brian nokkur Wilson sýnir allar sínar bestu hliðar í lagasmíð og raddútsetningu. Endilega kíkið á lagið ef þið hafið völ á....ekki ætla ég allavega að bjóða upp á það hérna, slíkt gæti fallið undir það að vera lögbrot.

Góðar stundir.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home

Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com