fimmtudagur, mars 10, 2005

-Íþróttagarpurinn ég-
Það styttist óðfluga í keppnistímabil Utandeildarinnar í fótbolta og stefnum við Kóngarnir að sjálfsögðu á að vera með í baráttunni í sumar. Eitt af því sem mig hefur lengi langað er að komast í smá form þannig að maður væri allavega undir það búinn að geta spilað heilan leik. Liður í þeim áformum var að skella sér út að hlaupa í kvöld. Ég hef oft verið í slæmu formi, en sjaldan eins döpru og um þessar mundir (reyndar segi ég þetta á hverju ári, en ég er allavega í mjög döpru formi). Eftir að hafa hlaupið í örfáa kílómetra var ég orðinn eins og astmaveikur offitusjúklingur (með fullri virðingu fyrir þeim), og var farinn að spyrja mig í sífellu: "Er þetta þess virði? Þú gætir verið heima hjá þér að drekka bjór núna!". En ég hélt aðeins lengur áfram og nú er það ákveðið að þetta verður gert oftar og jafnvel reglulega...í það minnsta einu sinni í mánuði. Ég verð kominn í massa form þegar tímabilið byrjar loks í lok maí.

Góðar stundir.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home

Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com