laugardagur, apríl 02, 2005

-Ertu dáinn, út í bláinn...eins og páfinn sem ég er-
Nú liggur blessaður páfinn fyrir dauðanum, enda búinn að vera eins og lifandi lík í mörg herrans ár. En þrátt fyrir að þessi sorglegi atburður liggi í loftinu þá leyfa menn sér samt að líta örlítið á björtu hliðarnar, enda gildir páfinn til tíu stiga í leiknum sem hefur verið í gangi á milli mín og brósa síðustu árin. Ég vitna í þetta gamla blogg hérna.
Spennandi tímar framundan.

Ég fór á geisladiskamarkaðinn í Perlunni um daginn og ákvað að fjárfesta í einum disk með hljómsveitinni Interpol. Ég hef heyrt mikið talað um þetta band í nokkurn tíma og heyrði svo loksins eitt lag með þeim á dögunum og leist svona vel á. En allavega...diskurinn olli mér ekki vonbrigðum og mæli ég með honum við alla sem unna góðu rokki á góðum degi. Diskurinn heitir Antics og fæst í öllum betri plötuverslunum.

P.s. ljóðlínunum hér að ofan var breytt án leyfis frá höfundi eða aðstandendum höfundar.

Góðar stundir.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home

Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com