-Hér er nákvæmlega ekkert að gerast!-
Lífið leikur við mann á þessum vormánuðum, fyrir utan ritgerðarskrif og slíkt sem virðist fylgja þessum árstíma. Í gær gerðust nefnilega þau stórtíðindi að mínir menn í Liverpool komust í undanúrslit Meistaradeildarinnar. Þetta er í fyrsta sinn í sögu MD sem þetta gerist, en síðast komst liðið svona langt þegar við fórum alla leið í úrslitaleikinn árið 1985, þegar þessi keppni bar heitið Evrópukeppni meistaraliða, og nú þegar við erum að endurheimta flesta okkar leikmenn úr meiðslum þá get ég ekki séð að það sé nokkuð lið á jarðríki sem stoppar okkur í því að vinna þessa keppni þetta árið.
En nú bíða mín ritgerðarskrif...ég lofa að skrifa eitthvað skemmtilegra þegar ég verð búinn að klára það verkefni.
Góðar stundir.

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home