fimmtudagur, apríl 07, 2005

-Fermingarafmæli-
Í dag er merkilegur dagur. Á þessum degi fyrir fjórtán árum fermdist ég í Víðistaðakirkju í Hafnarfirði. Ekki verður nú sagt að sú trúarinnræting sem fylgdi þessari athöfn hafi haft djúpstæð áhrif á mitt líf, enda hef ég ekki "gengið með Gvuði" undanfarin ár.
Jói félagi minn fermdist reyndar líka sama dag og það er gaman að segja frá því að hann varð svo yfir sig spenntur í kirkjunni, að hann þurfti að dvelja á klósettinu meirihlutann af athöfninni með hausinn ofan í klósettskálinni. En hann er búinn að jafna sig í dag.
Það litla sem ég man frá þessum 7. apríl 1991 var það að það var þáttur um Jimi Hendrix á Stöð 2 þennan dag, og ég missti eiginlega af öllum þættinum og þótti það mjög miður. En sá leiði var bættur upp með gnótt góðra gjafa og meðal annars fékk ég fínar stereógræjur sem bróður mínum tókst að eyðileggja nokkru síðar, og auk þess eitthvað af peningum sem ég notaði til að kaupa mér mitt fyrsta alvöru trommusett. Nýttist sú fjárfesting mér ágætlega við tónlistariðkun næstu árin.
Svona var sem sagt sagan af fermingardeginum mínum.

Góðar stundir.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home

Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com