mánudagur, maí 02, 2005

-Sandy, why can´t we look the other way?-
Þá er maímánuður loksins mættur á svæðið, einhver bezti mánuður ársins. Fótboltinn fer að rúlla af alvöru uppúr miðjum mánuðinum, auk þess sem dregur til úrslita í Evrópuboltanum. Reyndar eru einhver próf sem eyðileggja fyrstu dagana, en maður reynir að láta það ekki hafa mikil áhrif á sig.

Ég (hinn skynsami og ábyrgi nemandi) tók mér frí frá skólabókunum á föstudagskvöldið og kíkti á kynningu hjá SonyEricsson. Þar var að sjálfsögðu allt fljótandi í bjór og ýmiss konar veigum, og er vægt til orða tekið þegar ég segi að það var tekið vel á því í drykkjunni (er þetta dæmi um hina nýju þolmynd?). Eftir að símapartýinu lauk var skundað á Gaukinn, hvar ég staldraði tiltölulega stutt við, enda frétti ég af góðum hópi manna á Café Rosenberg og ákvað að skunda þangað í snarheitum. Þar voru sem sagt staddir nokkrir meðlimir úr Vantrú og tyllti ég mér niður og spjallaði við Ívar félaga bróður míns og Birgi Baldursson trommuleikara. Ég átti ágætt spjall við Bigga um trúmál, tónlist og nýju þolmyndina, en við erum algjörlega á öndverðum meiði þegar kemur að síðastnefnda atriðinu. Í heildina var þetta eðal kvöld.

Laugardagurinn fór að mestu í lærdóm, en um kvöldið kíktum við Friðrika í heimsókn til vinafólks, sem reyndist hin bezta skemmtun, enda var mér boðið upp á nóg af bjór...og þeir sem mig þekkja vita að yfirleitt þarf ekki meira en það til að gera mig glaðan.

Á sunnudaginn lærði ég, en náði að troða einum æfingaleik í fótbolta þar inn á milli. Kóngarnir öttu kappi við eitthvurt lið sem nefndist Vatnsberarnir og er skemmst frá því að segja að við unnum 3-0, en vorum samt engan veginn að spila sannfærandi fótbolta í þessum leik. Sjálfur gerði ég ekki margt í þessum leik, lagði reyndar upp tvö ágætis færi sem ekki nýttust, en annars var ég bara rólegur í gær.

Langt síðan ég hef birt svona ítarlega skýrslu um það sem á daga mína hefur drifið, og greinilega löngu kominn tími á slíkt, ef marka má fyrirspurnir sem síðunni hafa borist á undanförnum vikum.

Góðar stundir.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home

Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com