þriðjudagur, apríl 19, 2005

-Gleðitímar-
Ég held að það sé við hæfi að óska bróður mínum og öðrum þegnum hinnar kaþólsku kirkju til hamingju með hinn nýja páfa, Benedikt XVI. Þarna er kominn svo rækilega íhaldssamur páfi, sem ekki einungis er á móti auknu jafnrétti kynjanna, samkynhneigðum sem og öðrum trúarhópum, heldur er líka á þeirri skoðun að rokktónlist sé "tjáning hinna óæðri hvata"!!! Greinilegt að ráðamenn innan kaþólsku kirkjunnar eru bara sáttir við það að vera fastir langt aftur í fornöld (reyndar var rokktónlist ekki til á þeim tíma), og eru ekkert að stressa sig á því að reyna að færa kirkjuna nær nútímanum...enda kannski engin ástæða til.

Hvenær tekur svo rannsóknarrétturinn aftur til starfa?

Góðar stundir.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home

Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com