fimmtudagur, apríl 14, 2005

-Komandi kosningar í Bretlandi-
Það held ég að margir eigi eftir að ramba inn á síðuna mína núna, haldandi að þessi fyrirsögn sé boðberi einhverrar vitrænnar umræðu um bresk stjórnmál...en svo er nú aldeilis ekki.
Ég var að sjá það að helsta slagorð breska verkamannaflokksins í komandi kosningum er: Britain forward not back.
Þetta minnir mig óneitanlega á slagorð geimverunnar Kang, þegar hann/hún bauð sig fram til forseta Bandaríkjanna (í einum Simpsons þætti fyrir þá sem ekki vita hvað ég er að tala um). Þar var slagorðið: We must look forward, not backward. Upward, not forward, and always twirling, twirling, twirling...! Stórskemmtilegt.
Það má svo geta þess að Kang vann þessar kosningar þannig að máske á þetta slogan eftir að halda Blair áfram við völd. Við fylgjumst spennt með og birtum nýjustu fréttir um leið og þær gerast.

Góðar stundir.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home

Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com