-Pólitísk umræða...og nú í fullri alvöru!-
Já hverjum hefði dottið í hug að slíkt myndi gerast hér á þessari síðu. Allavega...ég sá í fréttum í kvöld að Gunnar nokkur Örlygsson (sem ber styttinguna Görl á Alþingissjónvarpinu, en það er nú önnur saga) var að segja sig úr þingflokki Frjálslynda flokksins, og virðist ætla að ganga til liðs við Sjálfstæðisflokkinn. Nú ber því vissulega að fagna að menn sjái ljósið og gangi til liðs við réttan flokk, en ef við skoðum þetta í lýðræðislegu ljósi, væri þá ekki eðlilegt að Gunnar missti þingsæti sitt og fyrsti varaþingmaður Frjálslyndra tæki sæti hans? Hvað með kjósendur Frjálslynda flokksins sem kusu flokkinn til starfa á þingi, en ekki Gunnar per se? Eiga þeir allt í einu núna að sætta sig bara við það að atkvæðið þeirra fór að hluta til til annars flokks (sem í þessu tilfelli er sko alls ekki annars flokks), og þá kannski til flokks sem þeir ætluðu síst af öllu að kjósa? Mér þykir þetta að minnsta kosti mjög undarlegt.
...og lýkur þar með alvarlega horninu.
Góðar stundir.

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home