mánudagur, maí 09, 2005

-Who ran the iron horse?-
Morgundagurinn verður góður dagur, það get ég fullyrt. Ekki einungis verða liðin 65 ár síðan Winston Churchill tók við embætti forsætisráðherra Bretlands, heldur er morgundagurinn einnig útgáfudagur nýjustu breiðskífu hljómsveitarinnar Dave Matthews Band, en sú hljómsveit er í nokkru uppáhaldi hjá ritstjórn þessarar vefsíðu. Á nýju breiðskífunni, sem er í raun sjöunda hljóðversskífa hljómsveitarinnar og mun bera nafnið Stand up, þykir kveða við nokkuð nýjan tón hjá hljómsveitinni, og er það vissulega ákveðið fagnaðarefni að menn þori að þróa hljóm sinn áfram og láti aðeins reyna á formið.
Ef allt gengur að óskum verð ég kominn með þennan gæðagrip í hendurnar á allra næstu dögum, enda er spennan allt að því óbærileg.

Annars vil ég bara biðja ykkur um að hætta að trufla mig, því ég er að lesa undir próf.

Góðar stundir.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home

Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com