-Heroes and villains-
Strákurinn gerði sér ferð inn í Kringlu í dag og festi kaup á tveim geisladiskum, annars vegar X&Y með Coldplay og hins vegar Without gravity með Tenderfoot. Þegar þessi orð eru rituð hef ég látið Coldplay diskinn rúlla einu sinni í gegn, og virkar hann bara býsna vel á mig við fyrstu hlustun. Eftir eitt rennsli finnst mér Twisted logic vera yfirburðalag, en svo eru nokkur ansi efnileg lög við fyrstu sýn. Annars er þetta mjög Coldplay-leg plata (eins einkennilega og það kann að hljóma), hér er ríghaldið í formúluna og ekki verið að taka mikla áhættu...enda kannski engin þörf á.
Tenderfoot diskurinn er hins vegar ennþá í plastinu og bíður síns tíma, en ég hlakka mikið til að hlýða á þá afurð, enda það litla sem ég hef heyrt með bandinu ansi hreint áhugavert.
Svo bíð ég spenntur eftir að fá nýja Dave Matthews Band diskinn í hendurnar, sem og nýju smáskífu drengjanna í Leaves.
Já, það er margt að gerast í Rokklandinu þessa dagana.
Góðar stundir.

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home