miðvikudagur, júní 08, 2005

-Kvikmyndarýni-
Ég sá ansi skemmtilega mynd á dögunum sem nefnist Good bye Lenin. Verð ég barasta að mæla sterklega með þessari mynd við alla sem unna góðum kvikmyndum. Myndin er þýsk, gerist í austurhluta Þýskalands árið 1989 og fjallar um dreng sem reynir að hindra móður sína í að uppgötva að landið sem hún elskar meira en flest annað, Austur Þýskaland, sé í raun ekki lengur til eins og hún þekkti, en móðirin féll í dá skömmu áður en múrinn féll og vaknar í algjörlega breyttum heimi. Til að raska ekki ró móður sinnar, heilsu hennar vegna, leggur ungi drengurinn sig í framkróka við að láta eins og ekkert hafi gerst og reynir að halda Austur Þýskalandi lifandi, í huga móður sinnar að minnsta kosti.
Einkar áhugaverð og skemmtileg mynd, þó hún sé pínulítið langdregin á köflum. Myndina má fá á öllum betri vídeóleigum.

Góðar stundir.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home

Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com