mánudagur, júní 13, 2005

-Tónlistarrýni-
Á föstudaginn fékk ég í hendurnar langþráða smáskífu frá hljómsveitinni Leaves. Inniheldur skífan lögin The spell og Do I sink, eftir meðlimi sveitarinnar, og svo Til I die eftir Brian Wilson, eins og margoft hefur verið ítrekað hérna. Ég má til með að lýsa yfir hrifningu minni á þessum lögum. The spell er sennilega þeirra allra besta lag, flott lagasmíð og útsetningin alveg til hreinnar fyrirmyndar. Haganlega útsettir strengir, og svo heyri ég ekki betur en að það glitti þarna í smá glockenspiel, sem kemur svona líka afspyrnu skemmtilega út. Alveg eðal lag í alla staði.
Do I sink er líka mjög fínt lag og þessi tvö lög eru ansi góður fyrirboði fyrir plötuna sem kemur út síðsumars ef ég man rétt.
Útgáfa drengjanna á Beach Boys klassíkernum Til I die er einnig býsna góð, en stendur þó upprunalegu útgáfunni nokkuð að baki.
Ég mæli sem sagt eindregið með þessari smáskífu og vona að þessi litli pistill hafi vakið hjá þér, lesandi góður, löngun til að skreppa út í næstu búð og fjárfesta í einu eintaki.

Góðar stundir.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home

Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com