mánudagur, júní 27, 2005

-Fótboltablogg-
Það eru tvö knattspyrnulið á landinu sem tapa bara ekki leikjum þessa dagana. Bæði liðin eiga það sameiginlegt að koma frá Hafnarfirði, annað ber heitið Fimleikafélag Hafnarfjarðar og hitt liðið heitir Kóngarnir.
Ég fór í Árbæinn í gær og sá FH valta yfir ótrúlega slaka Fylkismenn, og nú hefur FH unnið átta fyrstu leiki mótsins. Sannarlega yndislegt.
Í kvöld tóku svo Kóngarnir á móti liði sem ber nafnið Henson, en þeir voru einmitt í öðru sæti í riðlinum okkar fyrir leik kvöldsins. Kóngar komust í 1-0 um miðjan fyrri hálfleik, en gestirnir jöfnuðu um miðjan seinni hálfleik. Menn voru svo farnir að sætta sig við jafntefli þegar Kóngar náðu á ótrúlegan hátt að skora sigurmarkið þegar aðeins voru sekúndubrot eftir af leiknum. Kóngarnir sem sagt taplausir í sumar, höfum unnið fimm leiki og gert eitt jafntefli og erum komnir í annað sætið í riðlinum okkar. Sannarlega yndislegt.

Góðar stundir.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home

Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com