miðvikudagur, júní 22, 2005

-It was the best of times, it was the worst of times-
Í dag var maður staddur í búðinni hjá mér og var að fylla út umsóknareyðublað. Strax á fyrsta reit var eyðublaðið farið að vefjast fyrir greyið manninum: "Símanúmer? Er það ekki bara númerið á símanum mínum?" Djísús! Mig langaði mikið að rífa blaðið úr höndunum á manninum og segja honum að hann væri ekki hæfur til þess að fá þá þjónustu sem hann var að sækja um. Eníhú.

Ég var að sjá drög að stundatöflu næsta hausts og hún lítur bara býsna bærilega út. Ég er aldrei lengur en til tólf í skólanum, nema á mánudögum er ég búinn um þrjú leytið....og er svo í fríi á föstudögum. Þetta gæti jafnvel bara kallað á þægilega innivinnu með skólanum. Ég er farinn að hlakka til að byrja aftur í skólanum.

Svo unnum við Kóngarnir sannfærandi sigur í bikarkeppni utandeildarliða í kvöld, 3-1, og erum komnir í 16-liða úrslit.

Góðar stundir.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home

Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com