miðvikudagur, júlí 27, 2005

-Í þessum skrifuðu orðum...-
...er Eiríkur sjónvarspsstjóri á Omega að skamma áhorfendur sína fyrir að leggja ekki inn pening í reksturinn. Greinilegt að það er orðið ansi hart í ári á þessari annars ágætu sjónvarpsstöð. Það væri mikil synd (mjög kristilegt orðalag) ef þessi stöð færi á hausinn. Nú verða allir að leggjast á eitt, oft var þörf en nú er nauðsyn...

...annars er það helst að frétta af mér þessa dagana, að ég og kærastan mín erum að flytja í nýja íbúð...og það í Kópavoginum af öllum stöðum. Ég hafði fyrir margt löngu gefið það út að ég myndi aldrei flytjast í þann bæ...en stundum þarf maður að brjóta odd af oblátu sinni. En frá og með næsta mánuði verð ég "stoltur" Kópavogsbúi...en örvæntið eigi, ég mun snúa aftur í Hafnarfjörðinn fyrr en síðar.

Svo styttist í að hljómsveitin sem ég er í fari loksins að láta í sér heyra á opinberum vettvangi...um eða eftir miðjan ágúst gætu hlutir farið að gerast...fylgist með.

Góðar stundir.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home

Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com