miðvikudagur, ágúst 03, 2005

-Spennan er yfirþyrmandi!-
Á morgun mun Magnús Guðmundsson forstjóri Landmælinga Íslands ganga á fund Halldórs Ásgrímssonar forsætisráðherra og kynna fyrir honum niðurstöður mælinga á hæð Hvannadalshnjúks. Að þeim fundi loknum mun Halldór stíga fram á tröppur Stjórnarráðsins og tilkynna niðurstöðuna fyrir landslýð. Má ljóst vera að mikill mannfjöldi verður þar samankominn til að hlýða á niðurstöðuna, fullur eftirvæntingar hvort hnjúkurinn er 2119 metrar, líkt og haldið hefur verið fram í hundrað ár, eða hvort hann er í raun allnokkru lægri, eða allt að 2111 metrar.

Mér finnst þetta allt saman hljóma eins og þetta sé frétt frá fimmta áratug síðustu aldar. Þess vegna þætti mér vænt um að fólk (sem ég geri ráð fyrir að muni fjölmenna á morgun) mæti í sínu fínasta pússi og að karlmenn verði með hatta á höfði til að fanga þessa gömlu stemningu, líkt og þegar tilkynnt var um sambandsslitin við Danmörku á sínum tíma, enda um álíka viðburð að ræða.

Annars er ég búinn að brjóta heilann, á meðan ég hefi ritað pistil þennan, um það hvort rita skuli Hvannadalshnjúkur eða Hvannadalshnúkur. Þætti mér vænt um ef einhver íslenskufræðingurinn sem þetta les (eflaust eru þeir fjölmargir) myndi veita mér upplýsingar um það.

Góðar stundir.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home

Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com