-Var Bendix ekki hljómsveit?-
Bílavandamál - Þau eru ekki alveg minn tebolli. Hef þó blessunarlega sloppið við allt bílavesen að heita má síðustu tvö árin. En nú virðist bíllinn minn ætla að fara að taka upp á þeim leiðinlega ósið að bila. Einhver leiðindahljóð hafa fylgt með þegar ég hef startað bílnum undanfarna daga, og í gær bar svo við að ég þurfti þrjár tilraunir til að starta bílnum. Þar sem ég er mjög bílafatlaður maður, ákvað ég að ræða við föður minn sem er sérfræðingur í svona málum. Kom þá í ljós að svissinn er orðinn eitthvað lélegur, sem lýsir sér í því að einhver bendix er ekki að fúnkera eins og hann á að gera! Þegar pabbi tjáði mér þetta, horfði ég á hann tómum augum...og það eina sem flögraði um í kollinum á mér var spurningin: "Bendix? Var það ekki unglingahljómsveit úr Hafnarfirði, með ungan Bó Hall í broddi fylkingar?"
...en sem sagt, bendix gaurinn er eitthvað að stríða okkur þessa dagana, og lýsi ég hér með eftir aðila sem langar að taka að sér að laga svona lagað fyrir lítinn pening.
Í framhjáhlaupi má geta þess að ég er búinn að fá grænt ljós á hugmynd mína að lokaverkefni í sagnfræðinni, og get ég vart beðið eftir því að hefja störf...líf og fjör.
Góðar stundir.

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home