föstudagur, september 23, 2005

-Himnaríki-
Í kvöld ætlum við skötuhjúin að bregða undir okkur betri fætinum og skella okkur á leiksýningu í Hafnarfirði (Mekka menningarlífsins á Íslandi). Verið er að sýna leikritið Himnaríki, en þetta sama stykki var einmitt sýnt fyrir tíu árum síðan þegar Hafnarfjarðarleikhúsið hóf störf. Á þeim tíma var ég svo heppinn að vera boðið á generalprufu á þeirri sýningu, og skemmti ég mér konunglega, enda sniðugt og skemmtilegt leikverk, þannig að ég bíð bara spenntur eftir kvöldinu.

Góðar stundir.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home

Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com