-Á morgun-
Morgundagurinn verður merkilegur dagur. Á morgun fer ég í fyrsta skipti í ein sex eða sjö ár í strætó. Ástæðuna má finna í pistli sem ég ritaði hér ekki alls fyrir löngu og fjallaði að miklu leyti um bílavandræði mín. Nú er sem sagt svo komið að bíllinn er kominn á verkstæði, og undirritaður neyðist til að treysta á almenningssamgöngur á morgun.
...síðast þegar ég fór í strætó kostaði farið 130kr. að mig minnir. Nú skilst mér að ferðin kosti 220kr. og þykir mér það ansi mikil hækkun á milli tveggja ferða....á sjö ára tímabili.
Ég lofa því að koma með pistil á morgun um þennan merka atburð í lífi mínu.
Góðar stundir.

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home