miðvikudagur, október 19, 2005

-The rain in Spain is mainly in the plain-
Tónleikarnir á laugardaginn tókust alveg merkilega vel. Bandið allt að þéttast all rækilega og mér er það til efs að ég sjálfur hafi spilað jafn vel í lengri tíma...þó ég segi sjálfur frá. Fékk lánaðar smá græjur frá einum albesta trymbli landsins, Bigga Baldurs, og kann ég honum beztu þakkir fyrir.
Stúdentakjallarinn var vel fullur af góðu fólki, en þó verð ég að lýsa yfir vonbrigðum mínum með lesendur þessarar síðu. Ekki einn einasti aðili, sem ég veit til að les þetta blogg reglulega, lét sig hafa það að mæta á svæðið og sýna stuðning í verki, og þykir mér það miður. Vonast ég til þess að lesendur síðunnar mæti betur á næstu tónleika sveitarinnar.

Annars á ég að vera að læra undir próf sem ég er að fara í á föstudaginn...bezt að einbeita sér að því næstu mínúturnar.

Góðar stundir.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home

Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com