fimmtudagur, nóvember 24, 2005

-Let´s go boating...boating!-
Á dögunum fékk ég forláta sendingu frá Amazyni í Bandaríkjunum sem innihélt meðal annars hina frábæru þætti Wind in the willows, sem sýndir voru á Rúv í minni barnæsku við mikla hrifningu...þangað til þeir fengu þá skrítnu flugu í kollinn að fara að talsetja þættina. Þarf vart að fjölyrða hversu mikið þeim tókst að rústa þáttunum við það...en það er nú önnur saga.

Þarna eru sagðar sögur af þeim félögum Mole, Badger, Ratty og svo síðast en ekki síst hinum sjálfumglaða og snobbaða Toad, sem veit fátt ömurlegra í heiminum en "the common housewife", eins og hann orðar það svo skemmtilega.



Það er sem sagt gríðarleg fortíðarhyggjustemning á heimilinu þessa dagana.

Góðar stundir.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home

Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com