laugardagur, nóvember 05, 2005

-Helgarblogg-
Í gær fór ég á djamm með nokkrum vinnufélögum. Farið var í pool í Faxafeninu, og eftir nokkuð digurbarkalegar yfirlýsingar frá mér síðustu daga um að ég myndi rúlla þessu poolmóti upp, þá þurfti ég að éta allt slíkt ofan í mig aftur, því ég komst ekki einu sinni upp úr riðlinum mínum. Vann bara einn leik og tapaði tveimur. Það var ekki hressandi. En í staðinn tók maður bara bjórinn fastari tökum, enda runnu nokkrir niður á frekar skömmum tíma.
Eftir púlið var haldið á bjórkvöld hjá Símanum, sem haldið var á hinum stórglæsilega skemmtistað Classic rock í Ármúlanum. Þarna var ekki minni maður en Geiri Sæm að spila, en því miður fyrir mig þá var hann víst búinn að spila lagið Sterinn (hans langfrægasta lag) áður en ég kom. Að öðru leyti var prógrammið hjá bandinu hans nánast það sama og hjá hljómsveitinni Hvín fyrir ca. tíu árum síðan...mjög ferskir drengirnir.
Mætingin á þetta bjórkvöld var reyndar frekar dræm, en þó sat ég þarna að sumbli fram til tvö með fríðu föruneyti. Alveg hið ágætasta kvöld, svona skemmtanalega séð.

Í kvöld er það hins vegar bara rólegheit yfir tölvunni og góðri tónlist...svo er reyndar eitthvað brjálað partý í íbúðinni fyrir ofan mig...ekkert sérlega hressandi.

Annars hef ég eiginlega ekkert meira að segja í þetta sinn.

Góðar stundir.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home

Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com