föstudagur, nóvember 18, 2005

-Skemmtisaga-
Vinnufélagi minn var að segja mér skemmtilega sögu núna rétt í þessu. Fjallaði sagan um það þegar móðir hans hitti meðlimi hljómsveitarinnar Led Zeppelin á Hard rock café, þegar þeir voru staddir hér á landi til að spila á Listahátíð.
Ég hváði og endurtók: "Á Hard rock café?"
"Já", sagði félaginn, staðfastlega.
"Árið 1970, þegar þeir spiluðu á Listahátíð?", sagði ég og átti í mestu erfiðleikum með að verjast hlátri.
"Já", endurtók vinnufélaginn. "Var ekki búið að opna Kringluna þá?"

Eftir dúk og disk, og eitt símtal í móðurina, kom í ljós að hún hafði víst hitt þá á veitingahúsinu Sælkerinn, sem hefur vafalítið verið Hard rock síns tíma.

En einhvern veginn var fyrri sagan skemmtilegri.

Góðar stundir.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home

Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com