fimmtudagur, desember 01, 2005

-Til hamingju...-

...Íslendingar til sjávar og sveita. Á þessum degi árið 1918 tóku gildi sambandslögin svokölluðu, en með þeim "breyttist Ísland úr hjálendu í fullvalda ríki sem tengt var Danmörku með frjálsu samkomulagi tveggja jafn rétthárra aðila. Einu sameiginlegu málin í þessu ríkjasambandi Íslands og Danmerkur voru konungdæmið sjálft og framkvæmd sambandslagasamningsins. Öll önnur málefni Íslands voru sérmál þess sem það eitt réð yfir". Reyndar sáu Danir áfram (um sinn að minnsta kosti) um utanríkismál Íslands, sem og varnir landsins, í umboði Íslands, auk þess sem hæstirréttur Danmerkur var áfram æðsta dómstigið.
Íslendingar voru loks orðnir íslenskir ríkisborgarar en ekki danskir líkt og áður.

Þetta var einhver mikilvægasti áfanginn í sjálfstæðisbaráttu þjóðarinnar, og þessum degi ber að sjálfsögðu að fagna, en einhverra hluta vegna virðast það nær eingöngu vera stúdentar við Háskóla Íslands sem halda merki þessa dags á lofti núorðið.

Annars er ég kominn í próflestrarfrí og því reynir maður eins og maður getur að gera eitthvað allt annað en að lesa í bókunum...jafnvel að bloggum fari fjölgandi á næstu dögum og vikum.

Heimild um fullveldi Íslands (og bein tilvitnun): Helgi Skúli Kjartansson: Ísland á 20. öld. Sögufélag. Reykjavík. 2003, bls. 75-76.

Góðar stundir

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home

Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com