mánudagur, nóvember 28, 2005

-Pí-
Ég er nýbúinn að fá í hendurnar nýja diskinn hennar Kate Bush, en ég hef einmitt verið mikill aðdáandi hennar í fjölda ára (Wuthering Heigts er til að mynda eitt fyrsta lag sem ég man eftir að hafa heyrt). Hún hefur reyndar alls ekkert verið að flýta sér að senda þessa plötu frá sér, því það eru einhver tólf ár síðan hún sendi síðast frá sér plötu.
Við fyrstu hlustun virkar diskurinn bara alveg helv...góður. Vissulega er þetta á köflum mjög furðuleg tónlist, eins og Kötu er von og vísa, til að mynda lagið pí (hér vantar táknið fyrir pí) þar sem hún syngur rúmlega hundrað fyrstu tölustafina í þessari endalausu talnarunu (reyndar skilst mér að hún fari ekki alveg rétt með röðina), en inn á milli leynast svo "hefðbundnari" lög.
Reyndar er svolítið erfitt að dæma svona disk (reyndar diska, því þeir eru tveir) eftir eina hlustun, en hann lofar allavega mjög góðu, og allir aðdáendur þessa magnaða listamanns ættu ekki að verða sviknir.

...ekki skemmir svo fyrir að meðal trommuleikara á plötunni er enginn annar en Peter Erskine, en ég hef notað ride kjuðana hans í háa herrans tíð, enda er symbala sándið með þeim fáránlega gott...svona fyrir trommunördana sem lesa þetta.

Góðar stundir.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home

Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com