föstudagur, nóvember 25, 2005

-Helgi skemmtana og hátíðahalda-
Það verður ýmislegt brasað þessa helgina, mikil gleði og mikið grín. Í kvöld fer ég út að borða með vinnunni á Hereford steikhús, og er ætlunin að sporðrenna einni góðri steik og jafnvel smá öl með því.
Á morgun verður haldið upp á tveggja ára afmæli Sögufjelags Hafnarfjarðar, hvar ég gegni formennsku, og verður hátíðin með glæsilegasta móti, og dagskrá frá morgni fram á nótt.
Á sunnudaginn verður svo skundað í eitt stykki afmæli, og um kvöldið er svo planið að kíkja á galdradrenginn hann Harry Potter í einu af kvikmyndahúsum borgarinnar.

Það er mikið húllum hæ framundan, og stíf dagskrá.

Góðar stundir.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home

Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com