laugardagur, desember 03, 2005

-Crouch er hetja!-
Nú er fyrri hálfleikur að verða búinn í leik Liverpool og Wigan, og minn maður Peter Crouch er búinn að skora tvö mörk. Þessi markamaskína sem keypt var frá Southampton fyrir tímabilið er að blómstra...alveg eins og ég var búinn að spá. Margir voru búnir að missa trúnna á þennan hæfileikapilt, en aldrei var ég í þeim hópi...og nú hlæjum við saman, ég og Peter Crouch, að öllum hinum. Sá hlær best sem síðast hlær kemur óneitanlega upp í kollinn.

Áfram Crouch, og áfram Liverpool!!!

Góðar stundir.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home

Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com