mánudagur, janúar 16, 2006

-Eftirsóttur-
Það er greinilegt að flutningur minn til Kópavogs hefur borist hratt og örugglega til eyrna Sjálfstæðismanna í bæjarfélaginu. Síðustu daga hafa dunið á mér símtöl, smáskilaboð og alls kyns póstur af öllu tagi, hvar ég er hvattur til að kjósa hinn og þennan frambjóðandann í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins um komandi helgi. Get ekki sagt að ég hafi verið duglegur að kynna mér menn og málefni hérna í bænum, enda ekki ætlunin að staldra mjög lengi við.
Eina sem ég veit er að Ásthildur Helgadóttir knattspyrnukona er að bjóða sig fram, sem og Ármann Kr. Ólafsson (sem menn skyldu forðast að rugla saman við rithöfundinn Ármann Kr. Einarsson), og ég held að Gunnar Birgisson ætli að bjóða sig fram aftur...þó svo að ég verði að viðurkenna að ég er ekki alveg með það á hreinu.

En nú er bara málið að leggjast yfir alla bæklingana og vega og meta hverja ég tel hæfasta til að stjórna þessu bæjarfélagi...því ekki efast ég um það eitt andartak að þetta séu allt hæfir einstaklingar, þó svo að flokkurinn sé að kúka á sig í leikskólamálum í bænum. En það er nú önnur saga, og líklega allt Framsóknarmönnum að kenna, eins og allt annað.

...en nóg af bæjarmálapólitík að sinni.

Góðar stundir.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home

Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com