-Víða um landið eru góðar hafnir-
Á laugardaginn var ég staddur í Keflavík frá morgni til kvölds á mjög svo skemmtilegri ráðstefnu sem haldin var á vegum Sagnfræðingafélags Íslands og félags þjóðfræðinga. Var helsta umfjöllunarefni ráðstefnunnar áhrif varnarliðsins á menningu og samfélag í Keflavík, og þá sérstaklega tónlistarlíf bæjarins.
Hófst dagurinn á skoðunarferð um "Völlinn", auk mjög fróðlegs fyrirlestrar frá upplýsingafulltrúa hersins um eðli og umfang varnarliðsins og hvernig það hefur breyst á undanförnum árum. Alltaf gaman að koma upp á völl, og um að gera að nýta tækifærið áður en herinn fer héðan...sem verður væntanlega fyrr en síðar.
Að lokinni skoðunarferðinni hófst svo ráðstefnan og stóð hún langt fram eftir degi, og var fróðleg mjög. Í lok ráðstefnunnar fór svo áfengið að flæða eins og lög gera ráð fyrir og í kjölfarið var boðið til hátíðarkvöldverðar á Kaffi Duus. Þar var ég svo sérstaklega heppinn að á móti mér settist eldri maður, sem af einhverri ástæðu var með heyrnartól um hálsinn á sér allan daginn. Eftir stutta stund kynnti hann sig og spurði mig hvaðan ég væri. Ég svaraði eins og rétt var að ég væri frá Hafnarfirði. Jájá, sagði kallinn, það er mjög góð höfn í Hafnarfirði, og játti ég því. En þar með opnaðist einhver flóðgátt og næsta korterið blaðraði maðurinn stanslaust um hafnir hér og þar um landið. Sama hversu ég gaf lítið út á hin ýmsu staðarnöfn sem hann bar upp virtist hann tvíeflast frekar en hitt í að ræða þetta skemmtilega mál. Þegar búið var að afgreiða hafnarmálið, gátum við loks farið að ræða ýmis mál sem snerta almenna sagnfræði, eini gallinn var sá að þegar ég reyndi að koma einhverjum sögulegum staðreyndum á framfæri þá svaraði hann yfirleitt "Jájá, það getur vel verið". Ég verð að viðurkenna það að ég skemmti mér ekkert stórkostlega yfir borðhaldinu.
En að öðru leyti var þetta hin bezta skemmtun.
Góðar stundir.

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home